top of page
Björgvin Franz Gíslason

BJÖRGVIN FRANZ

LEIKARI & FYRIRLESARI

UM BJÖRGVIN FRANZ

Björgvin Franz Gíslason útskrifaðist frá leiklistardeild LHÍ vorið 2001 og hefur leikið margvísleg hlutverk hjá Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu og hjá Leikfélagi Akureyrar. Hann hefur verið tilnefndur til fjölda verðlauna og hlaut Grímuverðlaunin sem Söngvari ársins árið 2023. Hann hefur leikið burðarhlutverk í sjónvarpsþáttum og kvikmyndum bæði hérlendis og erlendis og starfaði um árabil sem umsjónarmaður Stundarinnar Okkar sem vann meðal annars Edduna fyrir flokkinn “Besta barnaefnið.”

 

Eftir Meistaranám sitt frá University of Minnesota var honum boðið starf sem kennari hjá Stjórnendanámi Símenntunar Háskólans á Akureyri og hefur starfað þar síðan árið 2018 samhliða leiklistinni.
Fyrirlestrar Björgvins hafa einnig notið gríðarlegra vinsælda en hann byggir þá að stærstum hluta á Meistaranámi sínu sem og eigin reynslu. Helstu kúnnar Björgvins eru stjórnendateymi og starfsfólk Icelandair, Íslandspósts, Arion banka, Íslandsbanka, Vinnueftirlitsins, Hafnarfjarðarbæ sem og fjöldinn allur af kennurum og skólastjórnendum víðsvegar um landið.

Björgvin Franz Gíslason

AFHVERJU FYRIRLESTRAR?

Björgvin Franz klessti á vegg út í Minneapolis árið 2011. Hann hafði nýlokið tökum á hinni sívinsælu Stundinni Okkar og ætlaði loksins að hafa það náðugt með fjölskyldunni í nýju landi, í nýju Meistaranámi. Björgvin hafði hinsvegar unnið 300% vinnu á Íslandi árin áður og hið nýfundna fjölskyldulíf í Bandaríkjunum umbreyttist í depurð og óskiljanlega vangetu á ýmsum sviðum. 


Í Meistaranáminu rakst Björgvin hinsvegar á kúrsa sem urðu kveikjan að gerbreyttum lífsháttum hans þar sem heilbrigð orkuskipti og hleðsla urðu að forgangsatriðum.
Einnig var lögð áherslu á aukna starfsánægju og leiðtogahæfni. Þessi umfangsmikla breyting gerði Björgvini kleift að skapa andrými til að vaxa og dafna sem öflugur og fókuseraður listamaður.

 

Þessar gagnreyndu aðferðir hafa svo orðið grunnurinn að tveimur fyrirlestrum Björgvins; annarsvegar

Okið Undan Sjálfum mér og Fjörugar Leiðir til Færni, sem hann hefur flutt fyrir þúsundir starfsmanna í yfir 40 fyrirtækjum, skólum og bæjarfélögum víðsvegar um landið.

Björgvin Franz Gíslason - Okið undan sjálfum mér

OKIÐ UNDAN SJÁLFUM MÉR

30 - 45 mínútur

Hreinskilinn fyrirlestur þar sem Björgvin lýsir því hvernig hann náði að breyta eigin vinnubrjálæði yfir í innri ró og raunverulega starfsánægju. Hann veltir því upp hvernig maður nær þeim árangri að verða betri starfskraftur með því að eyða færri klukkustundum í vinnunni en meiri tíma með fjölskyldu vinum.  Aðferðirnar sem Björgvin styðst við hafa verið notaðar til að þjálfa afreksíþróttafólk og forstjóra stærstu fyrirtækja heims til að öðlast betri árangri í sínu fagi sem og í lífinu. 

Björgvin Franz Gíslason - Fjörugar leiðir til færni

FJÖRUGAR LEIÐIR TIL FÆRNI

30 - 45 mínútur

Fjörugar leiðir til færni er nýjasti fyrirlestur Björgvins Franz sem hann byggir á Meistaranámi sínu frá University of Minnesota. Í þessum fyrirlestri fer hann markvisst í gegnum fimm gagnreyndar aðferðir til að ná öflugri árangri í starfi með sérstakri áherslu á starfsánægju, aukið flæði og að nýta starfsorku á skilvirkan og öflugan máta.

UMMÆLI 

Björgin Franz er hér með frábæran fyrirlestur fyrir vinnustaði sem er allt í senn einlægur, áhrifaríkur og hagnýtur og ég er sannfærð um að hann snertir við öllum þeim sem hlýða á.

Sara Hlín Hálfdánardóttir
Sérfræðingur hjá Vinnueftirlitinu

BÓKANIR & FYRIRSPURNIR
 

Bókanir og fyrirspurnir vegna fyrirlestra og samstarfs fara í gegnum Móðurskipið.

f4fa1d6d-e06d-4b19-bec7-d65b4c941140.png

Takk fyrir skilaboðin. Fyrirspurn verður svarað eins fljótt og auðið er.

© 2026 by Björgvin Franz Gíslason
bjorgvinfranz@gmail.com

Ljósmyndir á þessari síðu tók Saga Sigurðar. 
 

bottom of page